Fimmtudagur, 21. nóvember 2019
staka
Unir margur sæll við sitt
þótt sumt sé reynt að fela
Aðalsmerki þekkt er þitt
það er að ljúga,svíkja og stela
LHS
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. janúar 2016
ræpan
Á haustdögum á liðnu hausti var leikritið "Ræpan#,flutt í skíthúsinu við Skaftahlíð, og þar með drullað yfir heilt byggðarlag og fleira.Leikritið var samið af vítisveiruarmi vv og flutt ma. af einni veirunni undir leikstjórn SS.
Gráðugar skítætur gleyptu í sig seyrun af þvílíkum krafti að drullan frussaðist út um kjaftvikin á þeim í allar áttir svo illgerlegt var fyrir heiðvirta og sómakæra að forðast óhroðan. Sumar mömmur og aðrir uppfræðendur mötuðu börn sín og annara á mykjunni, því enginn skyldi undan víkja .Þvílýkur sori.
fh.
Menning og listir | Breytt 2.9.2021 kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. janúar 2016
fréttir
Vondur gengur vírus hér
Er veldur nýð og seyru
Undan rótum runnin er
Rotinni vítis-veiru
Ýmsir hafa öðlast smit
Og orðið bísna veikir
Því veiran legst á lítið vit
Sem lygar og óhroð kveikir
Aðrir hafa orðið andleg svín
Og seyrunni dreift á fullu
og brúka til þess börnin sín
Að breiða út þá andans drullu.
Mánudagur, 23. mars 2015
Af gefnu tilefni
Samfélagssins sora pakk
Sem lítt í vitið stígur
Með undirferli róg og rakk
Að réttvísinni lýgur
þeir sem taka þátt í því
Og þvælan liga glepur
Ógeðs eðli er þeim í
Er seyruna úr því lepur
Laugardagur, 13. desember 2014
veiran
Vondur gengur vírus hér
Sem veldur nýð og seyru
Runnin undan rótum er
Rotinni vítis veiru
Menning og listir | Breytt 26.12.2018 kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. janúar 2010
ný samheita gáta
Hann er oft við hausinn kenndur
hátt við Skagafjörðinn rís
Einn og einn er i hann sendur
En fall úr honum enginn kýs
LHS
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. janúar 2010
Myndbönd heimatilbuin
Hér er buið að bæta við myndböndum
Mánudagur, 3. mars 2008
Samheita gátur
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. janúar 2008
Þakgluggar
Gott er að hafa glugga á þakinu
og geta séð upp í heiminn víða
Ljúft er þá að liggja á bakinu
er sælustraumar um holdið líða
Menning og listir | Breytt 16.4.2018 kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1069
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar