Góðir hálsar

Það var fundur á Paterksfyriði fyrir stuttu um vegalagningu í vesturbyggð, þar sem innanríkis ráðherrann ´Ö. lýsti þeirri skoðun sinni, að best væri að endurgera vegi á sama stað og þeir liggja nú .Ég varð bæði undrandi og hissa að heyra viphorf ráðherrans, sem ég taldi að væri með skynsamari mönnum og væri ábyrgur orða sinna . Ég fer oft þessa leið og það á flestum árstímum ,þaes, ef friðaði skaflinn á Hrafnseyrarheiðinni hamlar ekki för. Það er með ólíkindum að nokkrum manni skuli láta sér detta í hug að leggja vegi yfir fjallvegi þar sem auðvelt er að fara aðrar leiðir. Er ekki kominn tími til að menn hætti að taka ,að .því er virðist,ákvarðanir með nýrunum, en  nota heilann heldur.Það á heldur ekki  að fara eftir þvælu hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við náttúrvernd þegar kemur að nauðsinlegum framkvæmdum sem varða velferð og hagsmuni allra landsmanna.

Svar við bréfi IHF frá nov 2009

 

 

Svar vi bréfi IHF frá nóv 2009 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

ný samheita gáta

 

            Hann er oft við hausinn kenndur

            hátt við Skagafjörðinn rís

            Einn og einn er i hann sendur

            En fall úr honum enginn kýs

 

                                                 LHS


Myndbönd heimatilbuin

 

                 Hér er buið að bæta við myndböndum


Hjónaballsvísur 2009

Það var orðið áliðið á borðhald þegar kom að flutningi á vísum um hjónaballsnefndina og

salurinn orðinn nokkuð hávær, svo að vísurnar komust ekki nógu vel til skila . Það hafa margir 

óskað eftir því að þær verði settar á vefinn , og geri ég það hér með  Líni Hannes

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Samgöngur

Það er löngu kominn tími á stjórnendur þessa lands átti sig á því, að ef byggð á að haldast í landinu Þá eru það samgöngumál sem vega afar þungt og með ört hækkandi eldsneytisverði er afar brýnt að stytta allar vegalengdir eins og hægt er .Umhverfissinnum ætti að vera kappsmál að þrýsta á að svo verði. Það ættu að vera forgangsverkefni í vegagerð að brúa sem flesta firði og fara í gegnum fjöll og hálsa, heldur en að búa til vafasama hálendisvegi sem geta verið lokaðir eða stórhættulegir svo dögum skiptir yfir vetrarmánuðina.  meira síðar. 

Samheita gátur

Oft má sjá við ystu brún                  
Einnig í húsi heilags anda                 
Hér má finna hlunna-hún                 
hverfa gömul spor að vanda            
 
 Svartan kyssir aldan sand  
 sést það vel í brókum fínum
 Þegar bóndinn bætir land
 bresta kann í beinum þínum
                                                          LHS
 

Heilabrot

Oft í hafi hátt hann rís

Fjörðurinn hafnar, geymir

einn er enda veggur vís

við hann margur dreymir.

                                               LHS
 


Nýjustu myndböndin

Signý og Anton Líni og Hreiðar Snær

lockness

Höfundur

Líni Hannes Sigurðsson
Líni Hannes Sigurðsson
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 1467

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Myndaalbúm

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband